| Helga's profileHelga felgaPhotosBlogLists | Help |
Helga felgabara enn einn vitleysingurinn
|
bók ásjónunnar Facebook er málið. Finnið mig þar SuðurleiðByrjuð að vinna aftur í heildsölunni
Djammaði og fnykaði
Hálskirtlarnir munu fjúka eftir 2 vikur
Vantar hjúkrun þá... Blades of GloryGaman að þessari
Munið eftir þessu lagi með Marky Mark? Það er notað í einu atriði í myndinni. Mæli með
hva skal segjablabla Mælimeð´essupop! Frábært myndband, lagið klessist við heilabörkinn þannig að ekki horfa nema þið getið tekið afleiðingunum! Hvernig er hægt að vera trommari og vera svona taktlaus, takið eftir honum Sá sem leikur söngvarann er fæddur sama dag og ég -Useless info en gott að vita. Hann er megabeib, minnir mann á gaur sem leikur í ER, en þetta er alls ekki sá Sá þessa mynd í bíói og hún er ágætis léttmeti, heitir Music and lyrics, fín mynd fyrir 80´s aðdáendur eins og undirrituð Helga með sítt að aftan Í kjólinn fyrir jólinEin sem heldur að hún útskrifist í vor, er alltaf að skoða kjóla á netinu. Datt niður á einn, er með aðra í huga ef að hinn bregst.
Hlakka til að vera fín, maður lifir fyrir svona stórviðburði sem koma einu sinni á ævinni.
Það er svo gaman að klæða sig í kjóla og pils og vera dömuleg til tilbreytingar.
-Ef að ég byggi ekki á Íslandi, þá gengi ég ekki í buxum, nema joggingbuxum á kósýheitadögum.
Svo hef ég átt tvennar hör/bómullar buxur og það er sama og dauði og djöfull.
Lærapokarnir á mér nuddast saman og svo kemur gat mjög fljótt og þá er voðinn vís.
Það plús hælsæri og þá helltist Helga úr lestinni eins og í Róm sælla minninga...............bókstaflega
sjöhundruðþúsundkrónateppiðFór í partý um daginn, þar var gólfmotta ein sem kostaði víst 700 þúsund krónur íslenskar á sínum tíma og það í Kanada. Voða huggó heimili og allt það. Húsgögnin hennar ömmu gömlu sérsmíðuð og milljóna virði. Ekki búin að vera lengi inni og þá veit maður verðmæti alls! Er skrýtið að maður labbi á eggjaskurni og sé með matarsalt og tuskur til að bjarga annarra manna mottum frá rauðvínsdauða? Maður skemmtir sér lítið þegar maður passar annarra manna eigur... Fékk einkadans meðan ég sat í ruggustól, alveg óumbeðið, takk Siggi minn Lék mér aðallega við hundinn á hemilinu, takk Kátur sprellikall Góð skemmtun sem mun lifa í minningunni frá Hvanneyri Verði ykkur að GóuGleðilegt ár Já, ég veit, ég er búin að vera löt að skrifa hér inn. Reyndi að gera blogg í einn mánuð á gamla blogginu mínu djöst for fönn, en sprakk fljótlega á limminu í öllum verkefnunum og próflestri um miðjan desember. Svoleiðis fór um sjóferð þá
Mama míaHún móðir mín er ofvirk, komin með link inn á túristasíðu, skoða hér
Familían stendur einnig í málaferlum til að verja heimilið og reksturinn, Austurvöllur er bitbeinið.
Engin lognmollla á ættaróðalinu, ónei
Býst við að vera farin heim í jólafríið um miðjan desember, fyrir ykkur sem eigið eftir að sakna mín. Er ekki enn komin með vinnu í jólafríinu -endilega látið það berast! weblogSegið mér ef að ykkur finnst að ég ætti að breyta síðunni þannig að myndirnar verði ekki aðalatriðið. Frekar eitthvað annað eins og t.d. blogg færslur. Alltaf þegar ég sjálf ætla mér að skoða síðuna mína, þá er hún svo lengi að hlaðast inn, líklegast út af myndunum.
Hægt að kommenta, skrifa í gestabókina mína, nú eða senda mér ímeil 1ns árs afmæli dúllunnarAnna Sól er orðin eins árs! Vá, til hamingju með daginn litli sólargeisli með hátíðni hljóðin. Njóttu vel... Þín móðursystir Draumaprinsinn í salatinuHér er linkur á frétt þann 22.sept
Það sama kom fyrir stórfjölskylduna á Austurveginum en þau sátu að snæðingi þegar einn slíkur hoppaði eftir stofugólfinu og eina líklega skýringin sem þau fundu að hann hefði komið með salatpokanum!
Mútta hringdi í salatfyrirtækið og maðurinn þar kom af fjöllum, en vissi til þess að þeir væru í miklu magni þarna á hollensku salatökrunum...
Vá, a.m.k. tvö tilvik í þessum mánuði
Læt fylgja með eina nýja mynd af honum Kela í Þvergötunni Bragð er að þá barnið finnurNú er það allra nýjasta hjá Stjörnu litlu að sjá mig, bestu móðursystur sína, í öllu og allstaðar. En nei, ég er stödd hinum megin á landinu og hún á Ísafirði :|
En hér kemur smá dæmi um "tvífara" minn og dæmi hver fyrir sig!
Kveðja Helga a.k.a Fabio
(held að það sé svipur með skrattaaugnsvipnum, eða eins og hún Sigrún Halla kallar glottið sem einkennir familíuna mína!) ,,Rapp, skóla rapp´´Skólinn byrjaður og allt það. Ok bæ Gamlar fréttir af minniÞað er nú ekki slæmt að geta haldið upp á litlu jólin um hásumar. Takk fyrir mig! AlbufeiraVerd i solbadi ut vikuna, bid ad heilsa ollum. Bye bye RomaErum b'uin ad skoda 'ymislegt thessa vikuna
Forum r'ustirnar
Pantheon hofid
Hadrians Villa og Villa D'este Tivoli
Pompei leifarnar
Vatikanid, ekki samt Sist'insku kapelluna og safnid
Villa Borghese almenningsgardinn og Piazza Navona
Del Corso aòal verslunargatan
Di Fiorio og Popolo torgin
Nenni ekki meiru Sumarið er að detta innjá, merkilegt nokk. Ég sótti um sumarvinnu í vínbúðinni en fékk ekki, en það skiptir ekki máli því mér boðin vinna í heildsölu sem ég ætla að taka. Brumm, brumm -verð að skutlast fram og til baka með skeinipappír og Sæmund í sparifötunum og annað kræsilegt. Sleiktu á mér tærnar!Já, á vorin tapa ég gleðinni öfugt við venjulegt fólk. Til þess að endurvekja áhuga og gleði fyrir náminu mínu (fyrst að námsefnið heldur mér ekki við efnið), þá var ég að panta gommu af bókum frá amazon.com. Nú á að glæða í mig lífi í sumar, -hvað er betra en að lesa góða bók með fallegum myndum? Og svo henda með einni bók um Sjálfið eftir Dr. McGraw... án gríns HeimasíðugerðVá loksins. Er að taka smá námsskeið í front page og öðru. Fatta loks hvernig á að setja inn link hér á blogginu.
Hér er kennslusíðan sem við notum Hún á afmæli í dag, trallalaÞegar mig vantaði 2 mánuði upp á 3ja ára afmælið mitt, þá eignaðist ég mína einkasystur. Þetta var þann 9.maí 1982. 17.júní sama ár var hún skírð Rakel Guðbjörg í höfuðið á föðurömmu okkar sem er líka Magnúsdóttir. Í skírninni var presturinn svo hrifinn af því hversu montin ég var með krílið, ég kallaði hana alltaf: ástin mín! Svo breyttist þetta í pjúra systraríg sem náði hámarki um unglingsaldurinn. Seinustu ár hefur hún verið upptekin af því að fjölga mannkyninu, komin með tvö yndi sem mér finnst ég eiga helling í, meira að segja útlitslega. Hún er sko hörkudugleg, og alltaf svo sæt og fín. Róm, kannski maður tefli við Benedikt XVI. þar?Já við bekkjarfélagarnir erum að fara eftir 2 vikur til Rómar, trúi þessu varla! Eyrún fær að fljóta með því við gellz ætlum að rápa eitthvað um Portúgal í 2 vikur eftir námsferðina, sem stendur yfir í c.a. 8 daga. S.s. verð í úglöndum í um 3 vikur og það er það lengsta sem ég hef verið fjarri Klakanum! Ísafjörður í sumar, ekki búin að fá vinnu Pabbi fyllir árin 50 þann 8.júlí Skólinn byrjar aftur í kringum 20.ágúst, ekki komin með húsnæði. Vil líka fá mér aukavinnu Ekki búin að finna mér viðfangsefni í lokaverkefnið mitt. -Þarf að vera byrjuð á því eftir áramót. Langar í flottan bíl, a.m.k. einhvern penni en Subaru station Langar að selja kofann, langar í blokkaríbúð með sjávarútsýni Langar í þrusukropp *Já, helgan er vain og insane Svo vil ég fá komment, thank you very nice! KameltáÞetta fyrirbæri er sko ekkert bundið við kvenmenn, ónei!
Helga hindber kveður (með hindberjafræ fast í jöxlunum) Föstudagur til fjárMér finnst föstudagskvöld með glötuðustu sjónvarpskvöldunum með sínu barnaefni á ruv, söngþema á st2 og testesterón miðuðu efni á skjá1. En þið heppin, þar sem ég sit hér á stól og pikka inn vef hux. Mér finnst gaman að fara í göngutúr í dimmu, það eru seinustu forvöð, því nú lengir daginn óðfluga og mig langar síður út á meðal fólks. Já, gæti þetta verið eitt af einkennum félagsfælni? Ekki miklar líkur á að hitta fólk hér í sveitinni, en það letur mig samt tilhugsun um slíkt. Þess vegna finnst mér myrkrið vera fínt, á sumrin finnst mér tilvalið að dvelja erlendis þar sem ríkja árstíðir og munur á degi og nóttu. -og ódýr bjór, slef. Nú langar mig í öl! En ég get það ekki með rispað vélinda eftir pestina. Kannski á morgunn, ef ég næ að afmyglast í nótt, þá skelli ég mér í kaupstað og sleiki gervisól af þar til gerðum bekk og skelli mér með mína doppóttu húð í loftbólusetlaug (er það ekki merkilegt, að þetta hræðir mig minna en hitta semi-kunnuga á almennafæri?). Vá, fyrir viku síðan var ég dj á grímuballi skólans, skrapp síðan í hóf til rvk, krækti mér í pestina þá um nóttina og hef verið meira og minna meðvitundarlaus fyrir framan imbakassann alla vikuna! Fljótt að líða þegar maður gerir ekki neitt af viti Vá, held barasta að bloggkvótinn sé búinn í bili, nema ég fari í kapp við mömmu og Hildi sem koma sterkar inn í bloggheiminn um þessar mundir eftir þónokkuð hlé. kríli sem að ég þekki
Stórfamilían og co
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|